Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
banner
   lau 03. júlí 2021 09:31
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Möguleiki á að Jóhannes Kristinn þreyti frumraun sína í dag
Jóhannes Kristinn
Jóhannes Kristinn
Mynd: Norrköping
Jóhannes Kristinn Bjarnason er í leikmannahópi Norrköping sem mætir Malmö í sænsku Allsvenskan í dag.

Jóhannes er sextán ára og gekk hann í raðir Norrköping frá KR fyrr á þessu ári.

Hann kom á dögunum við sögu í æfingaleik en í dag er möguleiki á fyrstu mínútunum í keppnisleik.

Þeir Ari Freyr Skúlason og Ísak Bergmann Jóhannesson eru einnig í leikmannahópi Norrköping. Leikurinn hefst klukkan 13:00.


Athugasemdir
banner
banner