Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Brynjar Björn útskýrir útlendingafjöldann
Ómar Ingi: Legghlífunum hans var stolið
Vill breytingar eftir tæklingu Grétars - „Getur eyðilagt ferla hjá mönnum"
Sætasti strákurinn á ballinu - „Hann er 39 ára í líkama sextugs manns"
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
   fim 03. september 2020 19:42
Ester Ósk Árnadóttir
Andri Hjörvar: Stelpurnar þurftu virkilega á þessu að halda
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
„Svakalega erfiður leikur. Við kannski stjórnuðum leiknum en það gekk illa að skora eins og hefur verið upp á síðkastið, sagði Andri Hjörvar þjálfari Þór/KA eftir sigur á Haukum í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins."

Lestu um leikinn: Þór/KA 3 -  1 Haukar

Hauka liðið skoraði fyrsta mark leiksins og voru mjög þéttar í leiknum.

„Virkilega vel gert hjá Hauka stelpum og mig langar að hrósa þeim og þjálfaranum fyrir frábæran leik og skemmtilega mótspyrnu. Við vissum að þetta yrði venjulegur bikarleikur þar sem allt getur gerst og svona eins og gengið okkar hefur verið vissum við að þetta yrði sálfræðilegt ef við myndum ekki ná að skora snemma."

Þór/KA sótti mikið upp hægra meginn þar sem Hulda Ósk er í aðalhlutverki.

„Það er partur af upplegginu. Þetta er stelpa sem getur gert skemmtilega hluti með boltann og að sjálfsögðu er frábært að hafa hana í liðinu en það eru 10 aðrir sem hafa stór hlutverk í liðinu. Hulda Ósk hefur það hlutverk að vera mikið í boltanum og skapa fyrir okkur."

Liðið hefur átt erfitt uppdráttar í deildinni. Búinn að tapa síðustu þremur leikjum og sitja í sjöunda sæti deildarinnar og framundan leikur á móti Fylki.

„Við lögðum þennan leik þannig upp að þetta gæti orðið upphafið að einhverju meira. Við ætlum og verðum að nýta þennan sigur í eitthvað meira. Það eru erfiðir leikir framundan, þéttspilað þannig að stelpurnar þurftu virkilega á þessu að halda."

Andri var ekki með sérstakann mótherja í undanúrslitunum.

„Selfoss og KR eru kominn áfram, bara annað hvort þeirra."

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner