Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 04. mars 2020 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ísland í dag - Stórleikur í beinni | Kvennalandsliðið á æfingamóti
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það er stórleikur á dagskrá í A-deild Lengjubikarsins í kvöld þegar Stjarnan tekur á móti Val á Samsung vellinum í Garðabæ.

Valur er með sex stig eftir þrjá leiki á meðan Stjarnan er með þrjú stig eftir tvo leiki.

Leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 4.

Fyrr um daginn mætir íslenska kvennalandsliðið til leiks í Pinatar Cup æfingamótinu.

Ísland spilar við Norður-Írland í fyrstu umferð. Úkraína og Skotland taka einnig þátt og mætast seinna í dag.

Lengjubikar karla - A-deild, riðill 4
19:00 Stjarnan-Valur (Samsung völlurinn - Stöð 2 Sport 4)

Pinatar Cup 2020 - A-landslið kvenna
14:00 Norður-Írland-Ísland (Pinatar Arena)
18:00 Úkraína-Skotland (Pinatar Arena)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner