Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   sun 04. júlí 2021 22:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Messi með tæplega 60 mörk úr aukaspyrnum
Mynd: EPA
Lionel Messi skoraði mark beint úr aukaspyrnu með argentíska landsliðinu í 3-0 sigri á Ekvador í 8-liða úrslitum Copa America í nótt.

Þetta var annað markið hans á mótinu sem hann skorar beint úr aukaspyrnu en hann er með fjögur mörk samtals og markahæstur á mótinu.

Hann er einnig með flestar stoðsendingar á mótinu eða fjórar talsins. Hann er samningslaus um þessar mundir en hann er í viðræðum við Barcelona um nýjan samning.

Hann hefur skorað 58 mörk beint úr aukaspyrnu á ferlinum, Goal tók saman lista yfir öll mörkin sem hann hefur skorað beint úr aukaspyrnum.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner