Tveimur leikjum er lokið í Lengjudeild kvenna í dag.
Afturelding vann ÍA með þremur mörkum gegn engu. Afturelding komst yfir strax á fyrstu mínútu en seinni tvö mörkin komu ekki fyrr en undir lok leiksins.
ÍA er í vondri stöðu en liðið gæti fallið ef Grótta vinnur Augnablik í kvöld.
Víkingur vann FH 4-2. Gríðarlega mikilvæg stig sem FH varð af í toppbaráttunni. Liðið er með jafn mörg stig og KR í 2-3. sæti og einu stigi á eftir Aftureldingu. KR á leik til góða á eftir gegn Haukum sem sitja í 5.sæti.
Nadía Atladóttir skoraði þrennu fyrir Víking.
Úrslit, markaskorara og stöðuna í deildinni má sjá hér að neðan.
ÍA 0-3 Afturelding
0-1 Ragna Guðrún Guðmundsdóttir ('1)
0-2 Jade Arianna Gentile ('79)
0-3 Guðrún Elísabet Björgvinsdóttir ('90+3)
FH 2-4 Víkingur
1-0 Brittney Lawrence
1-1 Nadía Atladóttir
1-2 Hulda Ösp Ágústsdóttir
1-3 Nadía Atladóttir
1-4 Nadía Atladóttir
2-4 Elísa Lana Sigurjónsdóttir
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir