Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 04. október 2021 18:00
Elvar Geir Magnússon
Abraham: Vinsamlegast fjarlægið markstangirnar
Mynd: Getty Images
„Vinsamlegast fjarlægið markstangirnar," skrifaði Tammy Abraham á Twitter, greinilega pirraður á því hversu mörg af skotum hans hafa farið í stöng eða slá.

Abraham gekk í raðir Roma fyrir tímabilið en hann hefur alls átt sex skot sem hafa endað í markstöngunum.

Í gær vann liðið 2-0 sigur gegn Empoli en Roma er í fjórða sæti eftir sjö umferðir í ítölsku A-deildinni. Abraham hefur skorað tvö mörk í deildinni og tvö í Sambandsdeildinni.

Enski sóknarmaðurinn hefur spilað tíu mótsleiki fyrir Roma síðan hann gekk í raðir félagsins frá Chelsea, hann er með fjögur mörk og þrjár stoðsendingar.

Abraham var í dag kallaður inn í enska landsliðshópinn fyrir komandi leiki landsliðins.


Athugasemdir
banner
banner
banner