Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 05. febrúar 2020 10:43
Magnús Már Einarsson
Abidal gæti misst starfið hjá Barcelona eftir gagnrýni Messi
Eric Abidal lék lengi með Barcelona.
Eric Abidal lék lengi með Barcelona.
Mynd: Getty Images
Josep Maria Bartomeu, forseti Barcelona, hefur boðað Eric Abidal, yfirmann knattspyrnumála hjá félaginu, á fund sinn eftir ummæli sem hann lét falla í viðtali á dögunum.

Abidal var í viðtali við Sport á Spáni þar sem hann ýjaði að því að sumir í leikmannahópi Barcelona hefðu ekki verið að standa undir væntingum undir stjórn Ernesto Valverde.

„Margir af leikmönnunum voru ósáttir og lögðu ekki mikla vinnu á sig. Það var líka vandamál með samskipti innanbúðar. Sambandið á milli þjálfarans og leikmanna var alltaf gott, en sem fyrrum leikmaður þá skynjar þú hluti," sagði Abidal.

Valverde var rekinn á dögunum og í hans stað ráðinn Quique Setién, fyrrum þjálfari Betis..

Messi var hins vegar ekki sáttur með ummæli síns fyrrum liðsfélaga. Hann segir að Abidal verði að nefna nöfn ef hann ætlar að láta svona frá sér. „Ég kann ekki vel við svona, en ég tel að allir verði að taka ábyrð á sinni vinnu og taka ábyrgð á sínum ákvörðunum," skrifaði Messi á Instagram í gær.

„Sem leikmenn þá erum við fyrstir til að segja þegar við spilum ekki vel. Það fólk sem sér um ákvarðanirnar utan vallar þurfa líka að taka ábyrgð, og fyrst og fremst að taka stjórn þegar kemur að ákvörðunum sínum."

„Í síðasta lagi, þegar þú ert að tala um leikmenn þá skaltu nefna nöfn. Annars ertu að setja dökkan blett á nöfn allra," skrifaði Messi.

Messi og Abidal léku saman hjá Barcelona á sínum tíma en sá síðarnefndi gæti nú átt á hættu að missa starf sitt hjá félaginu.
Athugasemdir
banner
banner
banner