Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 05. október 2021 11:41
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Grínaðist með að hafa þurft að tala við konuna í gær
Mynd: Getty Images
Það tóku margir eftir því í gær þegar Instagram, Facebook og WhatsApp lágu niðri. Margir gripu í Twitter á þeim tímapunkti.

Lucas Moura, leikmaður Tottenham, var einn þeirra. Hann skrifaði: „Þegar WhatsApp og Instagram lágu niðri gat ég talað smá við konuna. Hún er mjög fín."

Lucas hefur verið giftur Larissa Saad í fimm ár og ljóst að þau geta rætt málin vel í komandi landsleikjahléi þar sem Lucas var ekki valinn í brasilíska landsliðið.

Lucas fékk lof fyrir frammistöðu sína gegn Aston Villa um helgina en hann á ennþá eftir að skora eða leggja upp mark á leiktíðinni.


Athugasemdir
banner
banner