Tottenham er komið yfir gegn Norwich en Lucas Moura skoraði markið eftir 10 mínútna leik.
Lucas Moura skoraði markið með glæsilegu skoti fyrir utan teig eftir skemmtilegt samspil við Heung-Min Son.
Þetta er aðeins annað markið sem hann skorar með skoti fyrir utan teig en það fyrra kom í fyrsta leiknum hans fyrir Tottenham í deildinni gegn Fulham árið 2018.
Markið má sjá með því að smella hér.
Athugasemdir