Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 06. mars 2024 22:29
Brynjar Ingi Erluson
Championship: Undarlegt rautt spjald breytti leiknum
Borja Sainz sá rautt fyrir litlar sakir
Borja Sainz sá rautt fyrir litlar sakir
Mynd: Getty Images
Famara Diedhiou skoraði mark Cardiff
Famara Diedhiou skoraði mark Cardiff
Mynd: Getty Images
Lærisveinar Michael Carrick í Middlesbrough eru komnir aftur á sigurbraut eftir að liðið vann Norwich, 1-0, ensku B-deildinni í kvöld.

Norwich var með yfirhöndina í leiknum og komst yfir þökk sé Ashley Fletcher á 17. mínútu leiksins áður en Borja Sainz, leikmaður Norwich, var rekinn af velli eftir hálftímaleik fyrir litlar sakir.

Brotið var á Sainz, sem setti löppina upp, en þó ekki með ógnandi hætti og fyrir það var hann rekinn af velli. Þetta breytti leiknum algerlega.

Middlesbrough skoraði tvö áður en hálfleikurinn var úti og kom síðan þriðja markið þegar hálftími var eftir. Middlesbrough er í 12. sæti með 47 stig en Norwich í 7. sæti með 55 stig.

Cardiff City lagði Huddersfield að velli, 1-0. Senegalski sóknarmaðurinn Famara Diedhiou skoraði eina mark leiksins eftir hálftíma.

QPR og WBA gerðu 2-2 jafntefli á meðan Watford gerði 1-1 jafntefli við Swansea.

Úrslit og markaskorarar:

Cardiff City 1 - 0 Huddersfield
1-0 Famara Diedhiou ('30 )

Middlesbrough 3 - 1 Norwich
0-1 Ashley Barnes ('17 )
1-1 Marcus Forss ('37 )
2-1 Emmanuel Latte Lath ('43 )
3-1 Lukas Engel ('62 )
Rautt spjald: Borja Sainz, Norwich ('30)

QPR 2 - 2 West Brom
1-0 Sam Field ('17 )
1-1 Mikey Johnston ('25 )
1-2 Grady Diangana ('27 )
1-2 Michael Frey ('51 , Misnotað víti)
2-2 Sam Field ('81 )

Watford 1 - 1 Swansea
0-1 Ryan Andrews ('18 , sjálfsmark)
1-1 Wesley Hoedt ('57 )
Stöðutaflan England Championship - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Leicester 44 30 4 10 86 39 +47 94
2 Leeds 45 27 9 9 80 41 +39 90
3 Ipswich Town 43 26 11 6 85 53 +32 89
4 Southampton 44 25 9 10 85 61 +24 84
5 West Brom 44 20 12 12 67 44 +23 72
6 Norwich 44 21 9 14 77 61 +16 72
7 Hull City 44 19 12 13 65 56 +9 69
8 Coventry 43 17 12 14 68 55 +13 63
9 Middlesbrough 44 18 9 17 64 60 +4 63
10 Preston NE 44 18 9 17 56 61 -5 63
11 Cardiff City 44 19 5 20 50 61 -11 62
12 Bristol City 44 16 11 17 51 47 +4 59
13 Sunderland 44 16 8 20 52 51 +1 56
14 Swansea 44 15 11 18 57 62 -5 56
15 Watford 44 12 17 15 59 58 +1 53
16 QPR 45 14 11 20 45 57 -12 53
17 Millwall 44 14 11 19 43 55 -12 53
18 Stoke City 44 13 11 20 44 60 -16 50
19 Blackburn 44 13 10 21 58 74 -16 49
20 Plymouth 44 12 12 20 58 69 -11 48
21 Sheff Wed 44 13 8 23 39 68 -29 47
22 Birmingham 44 12 10 22 48 64 -16 46
23 Huddersfield 44 9 17 18 47 74 -27 44
24 Rotherham 44 4 12 28 32 85 -53 24
Athugasemdir
banner