Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 06. mars 2024 19:48
Brynjar Ingi Erluson
Evrópudeildin: Sporting og Atalanta skildu jöfn
Sporting gerði jafntefli við Atalanta
Sporting gerði jafntefli við Atalanta
Mynd: EPA
Sporting 1 - 1 Atalanta
1-0 Paulinho ('17 )
1-1 Gianluca Scamacca ('39 )

Sporting og Atalanta gerðu 1-1 jafntefli í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í kvöld.

Brasilíski leikmaðurinn Paulinho kom Sporting í forystu á 17. mínútu eftir að Trincao sendi hann í gegn en Atalanta jafnaði rúmum tuttugu mínútum síðar með marki Gianluca Scamacca.

Bæði lið fengu góð færi til að bæta við mörkum. Emil Holm og Ademola Lookman áttu skot í stöng fyrir Atalanta og þá stangaði Sebastian Coates, varnarmaður Sporting, boltanum í tréverkið í síðari hálfleik.

El Bilal Toure taldi sig hafa gert annað mark Atalanta á 87. mínútu. Framherjinn skoraði af stuttu færi en markið var dæmt af vegna rangstöðu.

Lokatölur 1-1. Síðari leikurinn fer fram á heimavelli Atalanta í Bergamó.
Athugasemdir
banner
banner