Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 06. mars 2024 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Neuer jafnaði met Iker Casillas í gær
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Manuel Neuer jafnaði met sem hefur staðið frá tímum Iker Casillas þegar hann hélt hreinu í 3-0 sigri gegn Lazio í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í gærkvöldi.

Þetta var í 57. sinn sem Neuer heldur hreinu í Meistaradeild Evrópu og er enginn markvörður til í sögu keppninnar sem hefur tekist að halda hreinu oftar.

Neuer hefur haldið hreinu í 57 af 136 leikjum á milli stanga FC Bayern í Meistaradeildinni, sem er talsvert betri tölfræði heldur en hjá Casillas sem þurfti 177 leiki.

Ítalska goðsögnin Gianluigi Buffon kemur næstur á lista eftir að hafa haldið hreinu 52 sinnum á sínum meistaradeildarferli.


Athugasemdir
banner
banner
banner