Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 06. mars 2024 16:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Tottenham á leið í viðræður við Lloyd Kelly - Fleiri félög hafa áhuga
Lloyd Kelly.
Lloyd Kelly.
Mynd: Getty Images
Tottenham er að undirbúa sig fyrir viðræður við Lloyd Kelly, varnarmann Bournemouth. Þetta herma heimildir Football Insider.

Samningur Kelly rennur út eftir tímabilið og verður hann þá fáanlegur á frjálsri sölu.

Leikmaðurinn er búinn að hafna nokkrum samningstilboðum frá Bournemouth og það er að opna dyrnar fyrir Tottenham sem hefur lengi haft áhuga á leikmanninum.

Newcastle og Liverpool hafa einnig verið orðuð við hann og þá eru AC Milan og Juventus að skoða Kelly.

Kelly er fjölhæfur varnarmaður sem hefur leikið með Bournemouth frá 2019. Hann er 25 ára gamall.
Athugasemdir
banner