Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 07. mars 2024 18:30
Ívan Guðjón Baldursson
Arna og Anika skrifa undir í Víkinni
Mynd: Víkingur R.
Tvær ungar og efnilegar voru að skrifa undir samninga við meistaraflokk Víkings R. sem gilda næstu tvö árin.

Arna Ísold Stefánsdóttir og Anika Jóna Jónsdóttir eru báðar fæddar 2009 og uppaldar í Víkinni.

Þær eiga báðar þrjá landsleiki að baki fyrir U15 lið Íslands og gera sér vonir um að fá að spila sínar fyrstu mínútur í keppnisleik með meistaraflokki í ár.

Arna spilar sem sóknarmaður og er lýst sem orkumiklum, vinnusömum og baráttuglöðum leikmanni.

Anika er grjótharður og vel spilandi miðvörður sem veigrar sér ekki við að reyna mikilvægar sendingar úr vörninni.
Athugasemdir
banner
banner