Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 07. mars 2024 15:31
Elvar Geir Magnússon
Guðni forseti og Guðlaugur Þór heimsóttu Bayern München
Glódís, Guðni og Guðlaugur.
Glódís, Guðni og Guðlaugur.
Mynd: Bayern München
Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, og Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfismálaráðherra heimsóttu aðstæður kvennaliðs Bayern München en fjallað er um heimsóknina á heimasíðu þýska stórliðsins.

Glódís Perla Viggósdóttir landsliðsfyrirliði tók á móti þeim og sýndi þeim svæðið en hún er lykilmaður hjá Bayern. Auk hennar eru Cecilía Rán Rúnarsdóttir og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir hjá félaginu.

Í myndbandi á heimasíðunni er sýnt frá heimsókninni á Campus svæðið hjá Bayern en þar æfir kvennaliðið og yngri lið félagsins. Á svæðinu er einnig gistiaðstaða og leikvangur sem kvennaliðið spilar nær alla sína leiki á.

Á heimasíðunni segir að það hafi verið mikill heiður að fá þessa heimsókn frá íslensku ráðamönnunum og Guðni segir að Íslendingar séu mjög stoltir af Glódísi.




Athugasemdir
banner
banner
banner