Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 07. mars 2024 21:23
Ívan Guðjón Baldursson
Lauren James gerði sigurmarkið í undanúrslitum
Mæta Arsenal í úrslitaleiknum
Mynd: EPA
Man City 0 - 1 Chelsea
0-1 Lauren James ('8)

Lauren James, yngri systir Reece James og ein af hæfileikaríkustu fótboltakonum heims, skoraði eina mark leiksins til að tryggja Chelsea farmiða í úrslitaleik enska deildabikarsins.

Chelsea heimsótti Manchester City í stórleik í undanúrslitum í kvöld og skoraði James eftir átta mínútna leik. Chelsea vann boltann þá hátt uppi á vellinum og kláraði James með marki eftir undirbúning frá Erin Cuthbert og Mayra Ramirez.

Bæði lið fengu góð færi til að bæta marki við leikinn í fyrri hálfleik en staðan var 0-1 í leikhlé. Man City tók öll völd á vellinum í síðari hálfleik en tókst ekki að skora þrátt fyrir góðar tilraunir.

Hannah Hampton átti frábæran leik á milli stanga Chelsea og gerði vel að halda markinu hreinu.

Chelsea mætir nágrönnum sínum í Arsenal í úrslitaleiknum, eftir að Arsenal rúllaði yfir Aston Villa í undanúrslitunum.
Athugasemdir
banner
banner
banner