Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
banner
   mið 07. júlí 2021 07:30
Victor Pálsson
Kane í stöðugu sambandi við Mourinho
Mynd: Getty Images
Harry Kane hefur verið í sambandi við Jose Mourinho yfir EM en framherjinn greinir sjálfur frá þessu.

Samband Kane við Mourinho er enn mjög gott þó að sá síðarnefndi hafi verið rekinn frá Tottenham á síðasta tímabili.

Mourinho átti ekki í góðu sambandi við alla leikmenn Tottenham en Kane er þar ekki meðtalinn. Þeir eru enn bestu vinir að sögn enska framherjans sem er kominn í undanúrslit með Englandi.

„Hann er frábær og við höfum sent skilaboð okkar á milli," sagði Kane í samtali við TalkSport.

„Það er vitað að okkar samband er frábært og við náðum vel saman. Ég virði hann sem náunga og þjálfara"

„Ég óska honum alls hins besta hjá Roma. Það er frábært að vera með einn besta stjóra heims með þér í liði."
Athugasemdir
banner
banner