Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 08. mars 2024 18:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Áhugi Man Utd á Freedman kemur Glasner ekki á óvart
Dougie Freedman
Dougie Freedman
Mynd: Getty Images

Manchester United er að reyna að fá Dougie Freedman, yfirmann fótboltamála hjá Crystal Palace, í teymið hjá sér en áhugi félagsins á honum kemur Oliver Glasner stjóra Palace ekki á óvart.


Glasner er þó bjartsýnn að þeir muni vinna saman að því að bæta leikmannahópinn í sumar fyrir næsta tímabil.

„Þetta staðfestir það sem ég var að hugsa. Hann er frábær yfirmaður fótboltamála og frábær einstaklingur. Ég hef talað mikið við hann undanfarnar tvær vikur, hann hefur fundið leikmenn út um allan heim," sagði Glasner.

„Hann er frábær náungi, við spjöllum ekki bara um fótbolta, ég get líka rætt um fjölskylduna og bara allt við hann. Ég veit ekki hvort orðrómurinn er sannur en ef svo er þá hljóta önnur félög að sjá það sama og ég."


Athugasemdir
banner
banner
banner