Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 08. mars 2024 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía um helgina - Spennandi Evrópuslagir á sunnudag
Mynd: EPA
Mynd: EPA
28. umferð ítölsku Serie A deildarinnar fer fram um helgina og hefst í Napolí í kvöld, þegar Ítalíumeistararnir taka á móti Torino í Evrópuslag.

Það eru fjórir leikir á laugardaginn, þar sem topplið Inter heimsækir spútnik lið Bologna en bæði lið hafa verið á blússandi siglingu að undanförnu. Inter er með tólf sigra í röð í öllum keppnum og Bologna með sex.

Albert Guðmundsson og félagar í Genoa eiga svo heimaleik við Monza annað kvöld en liðin sigla lygnan sjó um miðja deild.

Á sunnudaginn á AC Milan heimaleik gegn fallbaráttuliði Empoli áður en Juventus tekur á móti Atalanta í spennandi slag sem á sér stað fyrir lokaleik kvöldsins. Í lokaleiknum eru það Fiorentina og Roma sem mætast, en bæði lið unnu leiki sína í Evrópukeppnum í gærkvöldi.

Lazio og Udinese mætast í lokaleik umferðarinnar á mánudagskvöldið.

Föstudagur:
19:45 Napoli - Torino

Laugardagur:
14:00 Cagliari - Salernitana
14:00 Sassuolo - Frosinone
17:00 Bologna - Inter
19:45 Genoa - Monza

Sunnudagur:
11:30 Lecce - Verona
14:00 Milan - Empoli
17:00 Juventus - Atalanta
19:45 Fiorentina - Roma

Mánudagur:
19:45 Lazio - Udinese
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 33 27 5 1 79 18 +61 86
2 Milan 33 21 6 6 64 39 +25 69
3 Juventus 33 18 10 5 47 26 +21 64
4 Bologna 33 17 11 5 48 26 +22 62
5 Roma 33 17 7 9 59 39 +20 58
6 Atalanta 32 16 6 10 59 37 +22 54
7 Lazio 33 16 4 13 42 35 +7 52
8 Napoli 33 13 10 10 50 41 +9 49
9 Fiorentina 32 13 8 11 45 36 +9 47
10 Torino 33 11 13 9 31 29 +2 46
11 Monza 33 11 10 12 35 43 -8 43
12 Genoa 33 9 12 12 35 40 -5 39
13 Lecce 33 8 11 14 30 48 -18 35
14 Cagliari 33 7 11 15 36 56 -20 32
15 Verona 33 7 10 16 31 44 -13 31
16 Frosinone 34 7 10 17 43 63 -20 31
17 Empoli 33 8 7 18 26 48 -22 31
18 Udinese 33 4 16 13 31 50 -19 28
19 Sassuolo 33 6 8 19 39 65 -26 26
20 Salernitana 34 2 9 23 26 73 -47 15
Athugasemdir
banner
banner