Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 08. mars 2024 13:05
Elvar Geir Magnússon
Sutton spáir sigri Liverpool gegn City - „Salah gæti gert gæfumun“
Mohamed Salah kom inn af bekknum á 74. mínútu í gær.
Mohamed Salah kom inn af bekknum á 74. mínútu í gær.
Mynd: Getty Images
Það er beðið með mikilli eftirvæntingu eftir sunnudeginum en þá mætast Liverpool og Manchester City í stórleik tímabilsins til þessa í ensku úrvalsdeildinni.

Liverpool er á toppi deildarinnar með 63 stig en Manchester City er aðeins einu stigi á eftir. Leikurinn hefst 15:45 á sunnudag.

Chris Sutton sparkspekingur breska ríkisútvarpsins spáir í alla leiki deildarinnar og hann spáir 2-1 sigri Liverpool á sunnudag.

„City eru Englandsmeistarar, Evrópumeistarar og heimsmeistarar, svo hver ætlar að veðja gegn þeim? Ég ætla að gera það, ég held að þeir tapi," segir Sutton.

„Ég hef trú á því að þar sem Liverpool er á heimavelli hafi það örlítið forskot og endurkoma Mohamed Salah af meiðslalistanum gæti gert gæfumuninn í mjög jöfnum leik."

Salah kom inn af bekknum á 74. mínútu í gær þegar Liverpool vann öruggan sigur gegn Sparta Prag í Evrópudeildinni.

Sutton spáir því að Darvin Nunez skori og Liverpool fagni sigri sem reynist gulls ígildi í titilbaráttunni.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Man City 33 23 7 3 80 32 +48 76
3 Liverpool 34 22 8 4 75 34 +41 74
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Man Utd 33 16 5 12 51 50 +1 53
7 Newcastle 33 15 5 13 69 54 +15 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Bournemouth 34 12 9 13 49 60 -11 45
11 Brighton 33 11 11 11 52 54 -2 44
12 Wolves 34 12 7 15 46 54 -8 43
13 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
14 Crystal Palace 34 10 9 15 44 56 -12 39
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 34 11 8 15 36 48 -12 33
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 34 3 7 24 33 92 -59 16
Athugasemdir
banner
banner
banner