Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 08. mars 2024 14:50
Elvar Geir Magnússon
Wilder flýgur til Ríad til fundar með eigandanum
Chris Wlder, stjóri Sheffield United.
Chris Wlder, stjóri Sheffield United.
Mynd: Getty Images
Chris Wilder stjóri Sheffield United mun í næstu viku funda með Abdullah prins, eiganda félagsins. Liðið er í neðsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar, ellefu stigum frá öruggu sæti þegar ellefu leikir eru eftir af tímabilinu.

Þrátt fyrir erfiða stöðu segir Wilder að góðir hlutir séu að gerast utan vallarins þar sem horft sé lengra en út tímabilið.

„Ég er að fara til Ríad í Sádi-Arabíu í næstu viku til að hitta eigandann, ég verð þar í fjóra eða fimm daga. Hann skilur stöðuna sem við erum í. Hann er auðvitað ekki ánægður með stöðuna og ég var heldur ekki að búast við því," segir Wilder.

Sheffield United hefur aðeins unnið þrjá leiki á tímabilinu og er með -50 í markatölu. Wilder hefur mistekist að rétta skútuna við.

„Við tökum allir ábyrgð og þjáumst saman. Eigandinn fylgist vel með og er í góðu sambandi. Hann vill hafa hlutina á hreinu og vera með áætlun í gangi."

Sheffield United á útileik gegn Bournemouth á laugardag og vonast til að svara eftir 6-0 tap gegn Arsenal á Bramall Lane á mánudag.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Man City 33 23 7 3 80 32 +48 76
3 Liverpool 34 22 8 4 75 34 +41 74
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Man Utd 33 16 5 12 51 50 +1 53
7 Newcastle 33 15 5 13 69 54 +15 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Bournemouth 34 12 9 13 49 60 -11 45
11 Brighton 33 11 11 11 52 54 -2 44
12 Wolves 34 12 7 15 46 54 -8 43
13 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
14 Crystal Palace 34 10 9 15 44 56 -12 39
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 34 11 8 15 36 48 -12 33
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 34 3 7 24 33 92 -59 16
Athugasemdir
banner
banner
banner