Salah, Rashford, Guehi, Ten Hag, Dewsbury-Hall og fleiri í pakka dagsins
   mið 08. ágúst 2018 16:10
Elvar Geir Magnússon
Pogba í feluleik þegar hann mætti á æfingasvæði Man Utd
Miðjumaðurinn Paul Pogba faldi sig í þessum bíl sem mætti á æfingasvæði Man Utd.
Miðjumaðurinn Paul Pogba faldi sig í þessum bíl sem mætti á æfingasvæði Man Utd.
Mynd: Twitter
Á vefsíðu Mirror er sagt að franski miðjumaðurinn Paul Pogba hafi farið huldu höfði þegar hann mætti á Carrington, æfingasvæði Manchester United, í dag.

Þá er sagt að hann hafi notað annan inngang en venja er. Talið er að hann muni funda með Jose Mourinho, stjóra United.

Sagt er að Barcelona sé að reyna að krækja í Pogba. Þó ensk félög verði að kaupa fyrir klukkan 16 á morgun er spænski glugginn opinn til mánaðamóta svo Börsungar hafa talsverðan tíma til stefnu.

Manchester United hefur engan áhuga á að selja Paul Pogba í þessum glugga en sagt er að umboðsmaður leikmannsins, Mino Raiola, sé að reyna að ýta félagaskiptunum í gegn.

Mundo Deportivo segir að United hafi hafnað 45 milljóna punda tilboði auk leikmannana Yerry Mina og Andre Gomes í skiptum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner