Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 08. september 2019 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Kane: Gaman að spila með Sterling
Harry Kane
Harry Kane
Mynd: Getty Images
Harry Kane, framherji enska landsliðsins, segir það afar ánægjulegt að spila með Raheem Sterling.

Kane og Sterling eru lykilmenn í enska landsliðinu en þeir voru allt í öllu í 4-0 sigrinum á Búlgaríu í gær.

Kane skoraði þrennu fyrir England og lagði eitt mark upp. Þá skoraði Sterling eitt og lagði upp annað. Þeir tveir hafa myndað svakalegt teymi en Kane er ánægður með samvinnuna.

„Það er frábært hjá Raheem að halda áfram á sömu braut með landsliðinu og hann er að gera fyrir Manchester City. Hann er magnaður leikmaður og ég nýt þess að spila með honum og ég held ég tali fyrir hönd allra þegar ég segi þetta," sagði Kane.
Athugasemdir
banner
banner