Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 09. mars 2024 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Howe: Við þráum að halda Joelinton
Mynd: Getty Images

Eddie Howe stjóri Newcastle segist þrá að halda brasilíska miðjumanninum Joelinton hjá félaginu.


Samningur Joelinton rennur út sumarið 2025 en samningaviðræður milli leikmansins og félagsins ganga hægt.

„Félagið er enn að reyna að ná samkomulagi við Joelinton um nýjan samning. Það hafa ekki orðið miklar breytingar á stöðunni en við erum að reyna," sagði Howe.

Þessi 27 ára gamli Brasilíumaður gekk til liðs við félagið frá Hoffenheim árið 2019 og hefur leikið 179 leiki og skorað 25 mörk.


Athugasemdir
banner
banner
banner