Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 10. mars 2024 19:41
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikar kvenna: Katla skoraði bæði í sigri KR
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
ÍH 0 - 2 KR
0-1 Katla Guðmundsdóttir ('69 )
0-2 Katla Guðmundsdóttir ('85 )

ÍH og KR mættust í eina leik dagsins í C-deild Lengjubikarsins og var staðan markalaus eftir fyrri hálfleik.

KR tókst að sigra leikinn með tveimur mörkum í seinni hálfleik þar sem Katla Guðmundsdóttir lék á alls oddi og gerði bæði mörkin.

Katla skoraði fyrra markið á 69. mínútu og innsiglaði svo sigurinn á lokakaflanum.

KR hefur farið vel af stað í Lengjubikarnum og er með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir. ÍH er með þrjú stig eftir tvær umferðir.
Athugasemdir
banner
banner