Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 10. september 2021 18:57
Victor Pálsson
Emerson gæti óvænt spilað á morgun
Mynd: Getty Images
Emerson Royal, leikmaður Tottenham, gæti óvænt spilað sinn fyrsta aðalliðsleik fyrir félagið á morgun.

Emerson gekk í raðir Tottenham á lokadegi félagaskiptagluggans í ágúst og kom til félagsins frá Barcelona.

Tottenham borgaði 25,7 milljónir punda fyrir Emerson sem hefur lítið æft með stjörnum liðsins síðan þá þar sem landsleikjahlé hefur verið í gangi.

Giovani Lo Celso, Cristian Romero og Davinson Sanchez munu líklega ekki taka þátt í þessum leik sem er gegn Crystal Palace.

Alls gætu sjö stjörnur Tottenham misst af þessum leik og gæti bakvörðurinn því óvænt fengið að spila sinn fyrsta leik svo snemma.
Athugasemdir
banner
banner
banner