Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Ómar Ingi: Legghlífunum hans var stolið
Vill breytingar eftir tæklingu Grétars - „Getur eyðilagt ferla hjá mönnum"
Sætasti strákurinn á ballinu - „Hann er 39 ára í líkama sextugs manns"
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
   fös 11. janúar 2019 19:13
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Jón Dagur eftir fyrsta landsliðsmarkið: Fer núna í Fortnite
Icelandair
Jón Dagur Þorsteinsson skoraði jöfnunarmark Íslands í kvöld. Hér fagnar íslenska liðið markinu.
Jón Dagur Þorsteinsson skoraði jöfnunarmark Íslands í kvöld. Hér fagnar íslenska liðið markinu.
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Jón Dagur Þorsteinsson skoraði sitt fyrsta landsliðsmark þegar Ísland gerði jafntefli gegn Svíþjóð í vináttulandsleik í Katar í kvöld.

Lestu um leikinn: Ísland 2 -  2 Svíþjóð

Jón Dagur kom inn á sem varamaður og hann jafnaði í 2-2 mjög seint í leiknum.

Jón Dagur er tvítugur en hann var að spila sinn þriðja landsleik.

„Það var mjög góð tilfinning að sjá hann fara í markið og jafna leikinn. Við gáfum þeim þetta, ódýrt. Við fengum betri færi í leiknum," sagði Jón Dagur við Fótbolta.net eftir leikinn.

„Mér fannst þetta klaufalegt. Þeir voru mikið með boltann, en við fengum hættulegri færi. Það var gott að jafna þetta í endann."

Það var fámennt á Khalifa leikvanginum í dag, en þetta er eini HM völlurinn sem er tilbúinn fyrir HM 2022 sem Katar heldur.

„Það var ekki mikil stemning í stúkunni, en grasið var gott. Þetta var mjög gaman."

„Nú förum við í Fortnite," sagði Jón Dagur, en leikmenn hafa verið að leika sér í tölvuleiknum vinsæla þegar stund er á milli stríða í æfingaferðinni í Katar.

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner