Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 11. janúar 2019 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ranieri: Verðum að kaupa til að bjarga okkur frá falli
Mynd: Getty Images
Claudio Ranieri, stjóri Fulham, telur félagið þurfa að bæta nýjum leikmanni við hópinn til að bjarga sér frá falli.

Fulham er aðeins með þrjá sigra eftir 21 umferð og situr í fallsæti, fjórum stigum frá öruggu sæti.

„Við verðum að kaupa einhvern til að bjarga okkur frá falli. Það yrði frábært fyrir allan hópinn að sjá nýtt andlit koma inn," sagði Ranieri.

„Við erum að skoða okkur um og verðum að passa okkur að kaupa réttan leikmann. Ég má því miður ekki nefna nein nöfn."

Sky heldur því fram að Fulham hafi áhuga á Gregoire Defrel, sóknarmanni Roma á láni hjá Sampdoria, og Lys Mousset, sóknarmanni Bournemouth.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner