Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 11. mars 2024 16:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Cancelo: Ég vil vera hérna áfram
Joao Cancelo.
Joao Cancelo.
Mynd: EPA
Bakvörðurinn Joao Cancelo er staðráðinn í að vera áfram hjá Barcelona eftir yfirstandandi tímabil.

Cancelo gekk í raðir Barcelona síðasta sumar á láni frá Manchester City. Hann hefur ekki spilað fyrir City síðan hann lenti upp á kant við Pep Guardiola, stjóra liðsins, í janúar 2023.

„Ég veit ekkert hvað gerist í framtíðinni en ég vil mjög vera hérna áfram," segir Cancelo við Gazzetta dello Sport.

„Ég ólst upp við að horfa á Barcelona þegar Ronaldinho var stjarnan í liðinu. Hann er átrúnaðargoðið mitt. Ég er stoltur að klæðast þessari treyju."

Talið er að Man City muni biðja um 30 milljónir evra fyrir portúgalska bakvörðinn í sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner