Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 11. september 2021 10:20
Fótbolti.net
Lengjudeildin og fótboltafréttirnar á X977 í dag
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net fer yfir allt það helsta í boltanum á X977 í dag milli 12 og 14.

Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir fótboltafréttir vikunnar og Marteinn Ægisson framkvæmdastjóri Þróttar í Vogum verður á línunni en liðið hefur tryggt sér sæti í Lengjudeildinni á næsta tímabili.

Lengjudeildin verður einmitt fyrirferðamikil í þættinum á morgun. Rafn Markús Vilbergsson, sérfræðingur þáttarins, mætir í hljóðver ásamt Sæbirni Steinke íþróttafréttamanni.

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er á X-inu alla laugardaga kl. 12-14. Umsjónarmenn þáttarins eru Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon. Hægt er að finna þá á X samfélagsmiðlinum undir @tomthordarson og @elvargeir.

Smelltu hér til að hlusta á upptökur úr eldri þáttum.

Þú getur hlustað á X-ið á netinu með því að smella hérna

Athugasemdir
banner
banner
banner