Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 11. desember 2018 16:01
Elvar Geir Magnússon
Margir í Man Utd fá frí í komandi leik - Tveir sautján ára með
Mason Greenwood.
Mason Greenwood.
Mynd: Getty Images
Tveir sautján ára guttar, Mason Greenwood og James Garner, eru í leikmannahópi Manchester United sem mætir Valencia í Meistaradeildinni á morgun.

United er öruggt með sæti í 16-liða úrslitum fyrir lokaumferðina. Liðið á enn möguleika á efsta sætinu en þá þarf Young Boys að vinna Juventus. Eitthvað sem er rosalega ólíklegt að gerist.

Alexis Sanchez, Victor Lindelöf, Anthony Martial, Luke Shaw, Chris Smalling, Matteo Darmian og Diogo Dalot voru ekki í flugvélinni til Valencia.

Þá komu ljósmyndarar ekki auga á David De Gea og Nemanja Matic á flugvellinum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner