Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Brynjar Björn útskýrir útlendingafjöldann
Ómar Ingi: Legghlífunum hans var stolið
Vill breytingar eftir tæklingu Grétars - „Getur eyðilagt ferla hjá mönnum"
Sætasti strákurinn á ballinu - „Hann er 39 ára í líkama sextugs manns"
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
   fim 12. júlí 2018 20:44
Egill Sigfússon
Ýmir Már: Algjör draumur!
Ýmir Már skoraði sigurmarkið í kvöld
Ýmir Már skoraði sigurmarkið í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
KA fór til Grindavíkur í kvöld og vann gríðarlega mikilvægan 2-1 sigur þar sem Ýmir Már Geirsson kom inná og skoraði sigurmarkið á 92.mínútu með sínu fyrsta marki í efstu deild. Ýmir var í skýjunum og sagði þetta einfaldlega draumur og mjög sætur sigur í jöfnum leik.

Lestu um leikinn: Grindavík 1 -  2 KA

„Þetta var algjör draumur. Liðið er búið að spila mjög vel undanfarna leiki, búnir að vera þéttir og fá aðeins á okkur eitt mark í síðustu þrem leikjum. Þetta var mjög sætt eftir að hafði verið tekið mark af okkur."

Aðspurður hvort hann hefði ekki þaggað niður í þeim sem segja KA vanta sóknarmann svaraði Ýmir mjög hógvær en sagðist þó eiga skilið að byrja næsta leik.

„Ég veit það ekki, við verðum bara að sjá til. Það er eins gott að ég spili næsta leik eftir sigurmark í dag."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner