Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 13. mars 2024 18:37
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Byrjunarlið Bournemouth og Luton: Þrjár breytingar hjá Iraola - Nefbrotinn Barkley klár
Mynd: EPA

Það er einn leikur í ensku úrvalsdeildinni í kvöld þar sem Bournemouth fær Luton í heimsókn.


Þessi leikur fór fram í desember en var falutaður af eftir að Tom Lockyer fyrirliði Luton fór í hjartastopp.

Það eru þrjár breytingar á liði Bournemouth frá því um helgina. Lewis Cook, Dangao Outtara og Luis Sinisterra koma inn fyrir Milos Kerekez, Justin Kluivert og Marcus Tavernier. Þá er Tyler Adams kominn úr meiðslum og gæti spilað sinn fyrsta leik fyrir félagið.

Daiki Hashioka kemur inn í lið Luton á kostnað Gabriel Osho. Ross Barkley nefbrotnaði um helgina en er klár í slaginn.

Bournemouth: Neto; Cook, Mepham, Zabarnyi, Smith; Christie, Cook; Semenyo, Ouattara, Sinisterra; Solanke

Luton: Kaminski; Burke, Mengi, Kabore; Hashioka, Clark, Barkley, Doughty; Ogbene, Chong; Morris


Athugasemdir
banner