Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 13. nóvember 2021 08:45
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net
Landsliðið með Láka og Jón Rúnar á X977 Í dag
Jón Rúnar Halldórsson.
Jón Rúnar Halldórsson.
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Elvar Geir og Tómas Þór verða í þráðbeinni útsendingu frá Suðurlandsbraut í dag í útvarpsþættinum Fótbolti.net eins og venjan er 12-14 á laugardögum.

Í þættinum verður farið yfir fótboltafréttir vikunnar og þá mun Þorlákur Árnason, þjálfari Þórs og fyrrum starfsmaður KSÍ, gera upp landsleikinn gegn Rúmenum.

Jón Rúnar Halldórsson, stjórnarmaður í ÍTF, er gestur þáttarins. Rætt verður við hann um breytingar á íslensku deildinni, sjónvarpssamninga og fleira tengt íslenska boltanum.

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er á X-inu alla laugardaga kl. 12-14. Umsjónarmenn þáttarins eru Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon. Hægt er að finna þá á X samfélagsmiðlinum undir @tomthordarson og @elvargeir.

Smelltu hér til að hlusta á upptökur úr eldri þáttum.

Þú getur hlustað á X-ið á netinu með því að smella hérna

Athugasemdir
banner
banner
banner