Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 14. janúar 2023 22:28
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Eitt mark dugði Inter
Lautaro Martínez skoraði eina mark leiksins
Lautaro Martínez skoraði eina mark leiksins
Mynd: Getty Images
Inter 1 - 0 Verona
1-0 Lautaro Martinez ('3 )

Inter er nú með sex stiga forystu á fimmta sætið eftir að hafa unnið Verona, 1-0, á Giuseppe Meazza-leikvanginum í Mílanó.

Eina mark leiksins kom á 3. mínútu leiksins en argentínski sóknarmaðurinn Lautaro Martínez gerði það með góðu skoti við vítateigslínuna.

Inter vildi fá vítaspyrnu seint í fyrri hálfleik er einn af varnarmönnum Verona handlék boltann en dómarinn sá ekkert athugavert við það og lét leikinn halda áfram.

Martínez kom boltanum aftur í netið þegar hálftími var eftir en markið var dæmt af vegna brots í aðdragandanum.

Lokatölur 1-0 fyrir Inter sem er í 4. sæti með 37 stig, sex stigum á undan Lazio sem er í fimmta sætinu.
Athugasemdir
banner