Manchester Utd 1 - 0 West Ham
0-1 Craig Dawson ('53 , sjálfsmark)
Síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni var að ljúka en þar áttust við Manchester United og West Ham United á Old Trafford.
0-1 Craig Dawson ('53 , sjálfsmark)
Síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni var að ljúka en þar áttust við Manchester United og West Ham United á Old Trafford.
Bæði lið eru að berjast um Meistaradeildarsæti og var þessi leikur því mjög mikilvægur.
Fyrri hálfleikurinn var frekar rólegur. United stjórnaði ferðinni en án þess að skapa sér almennileg færi. Besta færi fyrri hálfleiksins átti Mason Greenwood en hann fékk þá sendingu frá Bruno Fernandes og átti fast skot sem Lukasz Fabianski varði frábærlega í horn.
Ekkert mark var skorað í fyrri hálfleiknum en United tókst að brjóta ísinn á 53. mínútu leiksins. Bruno Fernandes tók þá hornspyrnu sem Craig Dawson stangaði í eigið net. Scott McTominay fagnaði eins og hann hefði skorað en markið var skráð réttilega á Dawson.
Á 59. mínútu vildi Tomas Soucek fá vítaspyrnu og skoðaði VAR atvikið. Ekkert var hins vegar dæmt og hefði verið mjög strangur dómur að dæma vítaspyrnu. Í kjölfarið átti Bruno Fernandes hörkuskot sem Fabianski varði mjög vel í marki West Ham.
Besta færi síðari hálfleiks fékk Greenwood eins og í þeim fyrri. Hann skaut þá í þverslánna eftir hann ákvað að fara sjálfur með knöttinn. Marcus Rashford var með honum en Greenwood lét vaða í slánna.
West Ham reyndi að sækja en gekk ákaflega illa að ógna marki gestanna af einhverju viti. Leiknum lauk því með 1-0 sigri Manchester United og liðið því aftur komið í annað sæti deildarinnar.
West Ham er í fimmta sætinu, þremur stigum á eftir Chelsea en Hamrarnir eiga leik til góða.
Stöðutaflan
England
Premier league - karlar
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Arsenal | 34 | 24 | 5 | 5 | 82 | 26 | +56 | 77 |
2 | Man City | 33 | 23 | 7 | 3 | 80 | 32 | +48 | 76 |
3 | Liverpool | 34 | 22 | 8 | 4 | 75 | 34 | +41 | 74 |
4 | Aston Villa | 34 | 20 | 6 | 8 | 71 | 50 | +21 | 66 |
5 | Tottenham | 32 | 18 | 6 | 8 | 65 | 49 | +16 | 60 |
6 | Man Utd | 33 | 16 | 5 | 12 | 51 | 50 | +1 | 53 |
7 | Newcastle | 33 | 15 | 5 | 13 | 69 | 54 | +15 | 50 |
8 | West Ham | 34 | 13 | 9 | 12 | 54 | 63 | -9 | 48 |
9 | Chelsea | 32 | 13 | 8 | 11 | 61 | 57 | +4 | 47 |
10 | Bournemouth | 34 | 12 | 9 | 13 | 49 | 60 | -11 | 45 |
11 | Brighton | 33 | 11 | 11 | 11 | 52 | 54 | -2 | 44 |
12 | Wolves | 34 | 12 | 7 | 15 | 46 | 54 | -8 | 43 |
13 | Fulham | 34 | 12 | 6 | 16 | 50 | 54 | -4 | 42 |
14 | Crystal Palace | 34 | 10 | 9 | 15 | 44 | 56 | -12 | 39 |
15 | Brentford | 34 | 9 | 8 | 17 | 52 | 59 | -7 | 35 |
16 | Everton | 34 | 11 | 8 | 15 | 36 | 48 | -12 | 33 |
17 | Nott. Forest | 34 | 7 | 9 | 18 | 42 | 60 | -18 | 26 |
18 | Luton | 34 | 6 | 7 | 21 | 47 | 75 | -28 | 25 |
19 | Burnley | 34 | 5 | 8 | 21 | 37 | 69 | -32 | 23 |
20 | Sheffield Utd | 34 | 3 | 7 | 24 | 33 | 92 | -59 | 16 |
Athugasemdir