Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 14. mars 2024 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Kate Abdo skaut á Carragher: Pirrandi fjölskyldumeðlimur sem við elskum samt
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images

Jamie Carragher sparkspekingur olli miklum óþægindum í útsendingu CBS á Meistaradeildinni á þriðjudaginn.


Kate Abdo stjórnar útsendingunni en Carragher er sparkspekingur þáttarins ásamt Thierry Henry og Micah Richards.

Carragher var klæddur Arsenal treyju eftir sigur liðsins á Porto í vítaspyrnukeppni. Hann skoraði á Abdo að klæðast henni en hún, sem er stuðningsmaður Manchester United, afþakkaði og sagðist vera tryggur stuðningsmaður síns liðs.

Carragher sagði þá: „Þú ert ekki trú Malik," en Malik Scott er unnusti Abdo. Þetta fór ekki vel í hana og í kjölfarið myndaðist ansi óþægileg stemning í settinu.

Þau hafa greinilega náð sáttum en í þætti gærkvöldsins var hún ekki lengi að skjóta á Carragher þegar hún kynnti hann til leiks í upphafi þáttar.

„Jamie Carragher, stríðinn, getur sagt hvað sem er til að fá athygli. Gengur hann stundum of langt? Klárlega. Biðst hann afsökunnar? Já. Við eigum öll þennan pirrandi fjölskyldumeðlim sem við elskum samt," sagði Abdo.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner