Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 16. mars 2021 16:57
Elvar Geir Magnússon
Pogba og Cavani æfðu í dag
Paul Pogba og Edinson Cavani á æfingasvæðinu í dag.
Paul Pogba og Edinson Cavani á æfingasvæðinu í dag.
Mynd: Getty Images
Á fimmtudag verður seinni viðureign AC Milan og Manchester United í Evrópudeildinni, fyrri leikurinn endaði 1-1.

Paul Pogba, Donny van de Beek og Edinson Cavani gátu allir æft í dag á Aon æfingasvæði United. Þá er markvörðurinn David de Gea mættur úr sóttkví.

Franski miðjumaðurinn Pogba hefur verið frá síðan í jafnteflisleik gegn Everton 6. febrúar og þá hefur úrúgvæski sóknarmaðurinn Cavani misst af þremur leikjum í röð.



Hjá AC Milan virðist Zlatan Ibrahimovic vera að vinna kapphlaupið um að verða klár til að mæta sínu fyrrum félagi.

Þegar liðin mættust í síðustu viku þá kom Amad Diallo enska liðinu yfir með frábærum skalla en AC Milan jafnaði í uppbótartíma þegar Simon Kjær skoraði.
Athugasemdir
banner
banner
banner