Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 16. mars 2024 15:45
Aksentije Milisic
„Aldrei upplifað áður að vera svona mikið á bekknum"
Kim Min-jae.
Kim Min-jae.
Mynd: EPA

Suður-Kóreski leikmaðurinn Kim Min-jae hefur lítið fengið að spila hjá Bayern Munchen að undanförnu en hann var keyptur til liðsins síðasta sumar frá Napoli.


Kim var frábær hjá Napoli þegar liðið var ítalskur meistari á síðustu leiktíð og í kjölfarið keypti Bayern Munchen kappann.

Hlutirnir hafa hins vegar ekki alveg gengið hjá Kim í Þýskalandi en hann hefur mikið þurft að verma bekkinn.

„Ég hef aldrei upplifað það áður að vera svona mikið á varamannabekknum," sagði varnarmaðurinn.

„Ég held að ég geti lært eitthvað af þessu. Ég hugsa mikið um þetta, ég spilaði mikið af leikjum. Það eru mjög góðir leikmenn hjá Bayern svo það getur gerst að ég fái ekki að spila."

Bayern hefur verið í brasi á þessari leiktíð og er hætta á því að liðið farið titlalaust í gegnum tímabilið.


Athugasemdir
banner
banner