Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 16. mars 2024 15:20
Aksentije Milisic
Mount snýr aftur - Í hópnum gegn Liverpool á morgun
Mynd: Getty Images

Mason Mount, leikmaður Manchester United, er orðinn heill heilsu og mun hann vera í leikmannahópi liðsins sem mætir Liverpool í enska bikarnum á morgun.


Miðjumaðurinn hefur aðeins byrjað sjö leiki fyrir United síðan hann var keyptur frá Chelsea síðasta sumar fyrir um 60 milljónir punda en hann hefur ekkert spilað síðan í nóvember mánuði.

Hann hefur verið að glíma við erfið meiðsli í kálfa og því lítið verið til staðar fyrir Man Utd en honum var ætlað stórt hlutverk undir stjórn Erik ten Hag, sem vildi ólmur fá Mount síðasta sumar.

Þetta mun klárlega styrkja leikmannahóp Man Utd en meiðslin hafa dynjað á liðið alla þessa leiktíð. Rasmus Hojlund og Aaron Wan-Bissaka munu einnig snúa til baka á morgun.


Athugasemdir
banner
banner