Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 16. mars 2024 12:40
Aksentije Milisic
Stuðningsmenn Bayern fá ekki að mæta á Emirates leikvanginn
Mynd: Getty Images

Arsenal og Bayern Munchen mætast í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu en þetta varð ljóst þegar dregið var í hádeginu í gær.


Fyrri leikurinn fer fram á Emirates leikvangnum í London en stuðningsmenn Bayern Munchen fá ekki að mæta á þann leik.

Ástæðan er sú að þeir köstuðu flugeldum inn á völlinn í síðasta leik liðsins gegn Lazio í 16 liða úrslitunum. Þetta gerðist einnig seint á síðasta ári hjá Bayern og þá fékk liðið viðvörun og sekt.

Eftir atvikið gegn Lazio var ákveðið að Þjóðverjarnir fái því ekki að mæta á leikinn gegn Arsenal og því fær enska liðið enn meiri stuðning frá sínu fólki á Emirates.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner