Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   sun 17. mars 2019 17:35
Arnar Helgi Magnússon
Holland: Mikael og Elías spiluðu í tapi - Albert límdur við bekkinn
Mynd: Getty Images
Mikael Anderson og Elías Már Ómarsson voru báðir í byrjunarliði
Excelsior sem að mætti Zwolle í hollensku úrvalsdeildinni í dag.

Fyrsta mark leiksins kom ekki fyrr en á 82. mínútu en það gerði Kingsley Ehizibue fyrir Zwolle. Rétt áður voru Mikael og Elías báðir teknir útaf.

Zwolle komst í 0-2 tæpum tveimur mínútum síðar og þar við sat. Dýrmætur útivallarsigur fyrir Zwolle sem að situr í neðri hluta deildarinnar, líkt og Excelsior.

Albert fékk ekki mínútu
Albert Guðmundsson sat allan tímann á varamannabekk AZ Alkmaar vann frábæran sigur á Ajax, 1-0. Stjóri AZ Alkmaar notaði ekki allar skiptingarnar sínar í leiknum.

AZ situr í fjórða sæti deildarinnar þegar átta umferðir eru eftir af mótinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner