Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 17. mars 2024 11:00
Aksentije Milisic
Casemiro meiddur - Dró sig úr landsliðshópnum
Mynd: Getty Images

Casemiro, leikmaður Manchester United og brasilíska landsliðsins, er meiddur á ný og hefur hann dregið sig úr landsliðshópnum sem kemur saman eftir helgi.


Casemiro hefur misst af stórum hluta tímabils vegna meiðsla sem hann hlaut aftan í læri í deildabikarnum gegn Newcastle á síðasta ári og nú er hann kominn á meiðslalistann á ný.

Ekki kemur fram hvers konar meiðsli eru að plaga Brassann en ljóst er að hann verður því ekki með í dag þegar Manchester United mætir Liverpool í stórleik á Old Trafford í enska bikarnum klukkan 15:30.

Casemiro spilaði allan leikinn gegn Everton fyrir átta dögum síðan í ensku úrvalsdeildinni en ljóst er að eitthvað hefur komið uppá nú fyrir skömmu hjá þessum öfluga miðjumanni.


Athugasemdir
banner