Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 17. mars 2024 18:44
Brynjar Ingi Erluson
Dregið í undanúrslit enska bikarsins - Man Utd mætir Coventry
Mynd: Getty Images
Dregið var í undanúrslit enska bikarsins nú rétt í þessu en það eru ágætis líkur á því að Manchester-liðin mætist í úrslitaleiknum sem fer fram á Wembley í maí.

Manchester United, sem vann dramatískan sigur á Liverpool í dag, mætir Coventry City.

Ríkjandi meistarar Manchester City mæta Chelsea en leikirnir fara fram 20. og 21. apríl og eru báðir spilar á Wembley-leikvanginum í Lundúnum.

Manchester United hefur unnið bikarinn tólf sinnum, Chelsea átta siinum, Man City sjö sinnum á meðan Coventry hefur aðeins unnið hann einu sinni.

Drátturinn:
Man City - Chelsea
Coventry - Man Utd
Athugasemdir
banner
banner