Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 19. nóvember 2021 22:00
Victor Pálsson
Partey að öllum líkindum klár á morgun
Mynd: Getty Images
Thomas Partey, leikmaður Arsenal, ætti að vera klár fyrir stórleik liðsins á morgun gegn Liverpool í ensku úrvalsdeildinni.

Frá þessu greina enskir miðlar en Partey er afar mikilvægur fyrir Arsenal sem heimsækir Liverpool á Anfield.

Partey var ekki með í síðasta leik gegn Watford en spilaði fyrir það í góðum 2-0 sigri á Leicester.

Arsenal hefur verið á góðu róli undanfarnar vikur en liðið tapaði síðast leik þann 28. ágúst gegn Manchester City, 5-0.

Allar líkur eru á að Partey verði hluti af byrjunarliði Arsenal í leiknum sem hefst klukkan 17:30 á íslenskum tíma.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner