Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 20. mars 2024 09:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Liverpool tilkynnir mögulega um komu Hughes í dag
Hughes hér til vinstri.
Hughes hér til vinstri.
Mynd: Bournemouth
Richard Hughes er að færast nær Liverpool en Talksport segir að tilkynning sé möguleg væntanleg í dag.

Hughes mun taka við starfi yfirmanns fótboltamála hjá Liverpool og mun hann vinna náið með Michael Edwards sem var á dögunum ráðinn aftur til starfa hjá Liverpool sem nýr framkvæmdastjóri fótboltamála.

Hughes mun fá titilinn yfirmaður fótboltamála en hann kemur frá Bournemouth. Hann og Edwards munu saman vinna í leikmannamálum og öðrum stórum verkefnum hjá Liverpool.

Hughes átti flottan feril sem leikmaður og spilaði sem landsliðsmaður fyrir Skota. Eftir að skórnir fóru upp á hillu þá fór hann að vinna á bak við tjöldin hjá Bournemouth og hefur unnið sig upp metorðastigann þar síðustu árin. Hann hefur fengið hrós fyrir gott starf hjá Bournemouth undanfarin ár og fer núna í stærra verkefni.

Eitt af fyrstu verkefnunum sem Edwards og Hughes munu takast á við verður að finna verðugan arftaka fyrir Klopp, fráfarandi þjálfara Liverpool.

Xabi Alonso og Ruben Amorim eru taldir vera efstir á óskalista Liverpool sem stendur en það verður fróðlegt að sjá hvað gerist.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner