Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
banner
   mán 21. desember 2020 10:00
Magnús Már Einarsson
Keane hrósar McTominay - Meira segja ánægður með hárgreiðsluna
Mynd: Getty Images
Roy Keane, fyrrum leikmaður Manchester United, hrósaði Scott McTominay miðjumanni liðsins í hástert eftir 6-2 sigurinn á Leeds í gær. McTominay skoraði tvívegis snemma leiks í öruggum sigri United.

„Hann er 24 ára, hann er að þroskast. Hann er í góðu formi og hefur spilað marga leiki á meðal þeirra bestu," sagði Keane á Sky Sports eftir leik.

„Ég er meira segja ánægður með hárgreiðsluna hans, hún lítur vel út. Hann þarf að hugsa hvort hann geti sent boltann meira fram á við. Mörg lið hugsa um að halda boltanum en ef þú ert miðjumaður og það er svæði fyrir framan þig þá hleypur þú bara."

„Þetta var fullkominn leikur fyrir hann. Hann spilaði einfalt og hann er að þroskast vel. Hann þarf að bæta tölfræðina og skora meira en staða hans í liðinu hefur mest snúist um að vernda tæpa vörn liðsins."


Sjá einnig:
McTominay setti met - „Skyndilega breyst í blöndu af Scholes og Keane"
Keane um orð Neville: Meira af Scholes í McTominay
Athugasemdir
banner
banner
banner