Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 23. mars 2024 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Einvígi aldarinnar: Heimir Guðjóns og Höddi Magg mætast í hraðskák
Heimir Guðjónsson.
Heimir Guðjónsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hörður Magnússon.
Hörður Magnússon.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Knattspyrnuáhugamenn og skákáhugamenn ættu að taka Skírdag frá.

Heimir Guðjónsson, einn allra fremsti þjálfari Íslands í fótbolta og núverandi þjálfari FH, og Hörður Magnússon, betur þekktur sem Höddi Magg, fyrrverandi knattspyrnumaður og einn ástkærasti lýsir landsins, mætast í epísku hraðskákeinvígi á 220 BAR á Skírdag þann 28. mars klukkan 20:00.

Viðburðurinn er haldinn af félögunum í Chess After Dark en hugmyndin að einvíginu kom eftir að þáttastjórnendur hlaðvarpsins héldu „Blush mótið“ haustið 2022 en þar mættust Heimir og Hörður í mótinu þar sem Heimir hafði sigur. Þeir félagar eru báðir afbragðsskákmenn og eru álíka sterkir svo einvígið ætti að vera mjög jafnt og spennandi.

Skákin milli þeirra félaga vakti mikla athygli og því var ákveðið að slá til einvígisins.

Tefldar verða tíu hraðskákir og má lofa mikilli skemmtun.

Samkvæmt áreiðanlegum heimildum eru báðir keppendur afar sigurvissir og tala um að sigur verði formsatriði.

Sigurvegari einvígisins mun ekki aðeins sigra Einvígi aldarinnar, heldur einnig stoltið sem mun fylgja því að sigra og síðast en ekki síst, komið því á hreint hvor þeirra er í raun og veru sterkari skákmaður.

Bæði er hægt að mæta á staðinn eða horfa heima í stofu en sýnt verður frá viðburðinum í beinni útsendingu á Vísi en þar munu sterkustu skákmenn landsins lýsa skákunum hjá þeim félögum.

Knattspyrnuáhugamenn eru hvattir til að láta þennan spennandi viðburð ekki framhjá sér fara.
Athugasemdir
banner
banner