Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 23. maí 2021 23:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hakimi ósáttur: Ef þið eruð eitthvað á móti mér, látið mig vita
Achraf Hakimi.
Achraf Hakimi.
Mynd: Getty Images
Fótboltamenn sumir hverjir eru mjög hrifnir af tölvuleiknum FIFA og spila hann mikið.

Achraf Hakimi, bakvörður Ítalíumeistara Inter, virðist vera einn þeirra.

FIFA gaf á dögunum út lið ársins á Ítalíu í FIFA Ultimate Team. Þar eru leikmenn sem hafa staðið sig vel á tímabilinu á Ítalíu; skarað fram úr í sinni stöðu.

Hakimi var ekki í liði ársins og hann lét óánægju sína í ljós á samfélagsmiðlinum Twitter.

„Þvílíkur brandari. Ef þið eruð eitthvað á móti mér, látið mig þá vita. Þetta er bull," sagði Hakimi og beindi óánægju sinni að EA Sports, sem framleiðir FIFA. Hann telur sig eiga heima í liði ársins.



Athugasemdir
banner
banner
banner