Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 24. mars 2024 10:46
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Dagur Dan lagði upp í sigri - Jafnt hjá Nökkva
Mynd: Getty Images

Dagur Dan Þórhallson lagði upp í sigri Orlando City í MLS deildinni í Bandaríkjunum í nótt en Nökkvi Þeyr Þórisson byrjaði á bekknum í jafntefli St. Louis City.


Dagur Dan var í byrjunarliðinu þegar Orlando fékk Austin FC í heimsókn en hann lagði upp fyrra mark liðsins í 2-0 sigri. Þetta var fyrsti sigur liðsins í deildinni í ár en liðið er með 4 stig í 13. sæti eftir fimm leiki í Austurdeildinni.

St. Louis City fékk DC United í heimsókn. St. Louis komst yfir en DC United svaraði með tveimur mörkum áður en flautað var til leiksloka. Christian Benteke lagði upp fyrra markið og skoraði það síðara.

St. Louis jafnaði metin með marki úr vítaspyrnu þegar um tuttugu mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma. Nökkvi kom inn á sem varamaður tíu mínútum síðar en tókst ekki að setja mark sitt á leikinn.

Jafntefli niðurstaðan og St. Louis er með sjö stig í 8. sæti Vesturdeildarinnar eftir fimm leiki.


Athugasemdir
banner
banner